Innlent

Mótmæla komu herskipa til landsins

Spænska skipið SPS Patino kemur inn til hafnar í morgun.
Spænska skipið SPS Patino kemur inn til hafnar í morgun. MYND/Stöð 2

Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla komu þriggja herskipa Atlantshafsbandalagsins til landsins í dag og segja kurteisisheimsóknir af þessu tagi fallnar til að draga upp glansmynd af her og hermennsku.

Um er að ræða bandaríska skipið USS Normandy, spænska skipið SPS Patino og þýska skipið FGS Sachsen. Bandaríska skipið kom nsemma í morgun og það spænska er að sigla inn í Sundahöfn. Rúmlega 700 sjóliðar eru um borð í skipunum þremur.

Í tilkynningu frá Samtökum hernaðarandstæðinga er bent á að USS Normandy hafi tekið þátt í flestöllum stríðum Bandaríkjahers undanfarin ár. Hugsanlegt sé að í sprengjur þess sé notað rýrt úran.

Samtökin hvetja íslenska fjölmiðla til að velta upp spurningum um afdrif þess fólks sem orðið hefur fyrir sprengjum þessara vígtóla og þeirri staðreynd að krabbameinstilfellum fjölgar þar sem beitt hefur verið sprengjum með rýrðu úrani.

Þá minna Samtök hernaðarandstæðinga á að borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í mars 2002 að umferð og geymsla kjarnorku-, efna- og sýklavopna verði bönnuð í borgarlandinu. Vænta samtökin þess að gengið hafi verið úr skugga um að ekkert þessara skipa beri kjarnorkuvopn og hvetja jafnframt borgarstjórn til að ganga skrefinu lengra og hafna komu stríðstækja af öllu tagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×