Innlent

Svifryk hátt yfir heilsuverndarmörkum

MYND/GVA

Svifryk í Reykjavík mælist nú hátt yfir heilsuverndarmörkum og mælist umhverfissvið borgarinnar til þess að þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri eða astma haldi sig fjarri fjölförnum umferðargötum.

Í tilkynningu frá umhverfissviði segir að sólahringsmeðaltal við mælistöð við Grensásveg mælist 100 míkrógrömmum á rúmmetra en viðmiðunarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Þá er bent á að hálftímagildi á milli klukkan hálfellefu og ellefu í morgun hafi verið 250 míkrógrömm á rúmmetra sem er fimm sinnum meira en viðmiðunarmörk á sólarhring.

„Ástandið getur varað eitthvað áfram í dag en búist er við hita- og rakastig hækki síðdegis og hefur áhrif til hins betra," segir Anna Rósa Böðvarsdóttir hjá Mengunarvörnum Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. „Á morgun föstudag er spáð rigningu og því ólíklegt að svifryksgildið verði hátt."

Borgarbúar geta fylgst með svifrykmælingum á heimasíðu Umhverfissviðs, Menntasviðs, Leikskólasviðs og Reykajvíkurborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×