Lífið

Gubbi Morthens á flottasta bílnum á Stöðvarfirði

Guðbjörn Sigurpálsson í bílnum sem hann keypti af Bubba.
Guðbjörn Sigurpálsson í bílnum sem hann keypti af Bubba. mynd/Björgvin Valur

Eftir því hefur verið tekið á Stöðvar­firði að nýr bíll er kominn í plássið. Um er að ræða svartan Land Rover Discovery jeppa árgerð 2006 sem var áður í eigu ekki ómerkari manns en Bubba Morthens. Nýi eigandinn er trillusjómaðurinn Guðbjörn Sigurpálsson sem gengur nú undir gælunafninu Gubbi Morthens í bænum.

„Jú, það er rétt, ég keypti bílinn og viðurkenni að það var ekki síst vegna þess að hann var áður í eigu Bubba Morthens,“ segir Guðbjörn í samtali við Fréttablaðið. „Þetta er fínasti bíll en mér fannst þó skrítið að það var búið að keyra hann 16 þúsund kílómetra án þess að setja hann í smurningu. Ég veit ekki hverjum er þar um að kenna, B&L eða Bubba, en það verður að hugsa vel um þessa bíla.“

 

HVER GLEYMDI SMURNINGUNNI? Land Roverinn hans Bubba hafði aldrei farið í smurningu en Guðbjörn veit ekki hvort B&L eða Bubbi ber ábyrgð á því.

Guðbjörn vill ekki viður­kenna að hann sé einn af hörðustu aðdáendum Bubba en segist þó hafa gaman af honum. „Hann hefur nú samið mörg góð lögin en ég kunni aldrei við hann í dómarahlutverkinu í Idol-keppninni. Hann er alltof mikill hrokagikkur til að geta dæmt í slíkri keppni,“ segir Guðbjörn og má greina vott af vanþóknun í röddinni.

 

STOLTUR EIGANDI Það er flestra mat að Land Roverinn hans Guðbjörns sé með fallegustu bílum Stöðvarfjarðar nú um stundir. fréttablaðið/björgvin valur

Ekki hefur Guðbjörn hlustað á Bubba í Land Rovernum eftir að hann festi kaup á bílnum þar sem hann á enga diska með kónginum. „Það fylgdu engir diskar með í kaupunum. Er ekki Sjóvá líka búin að kaupa allt klabbið af honum?“ spyr Guðbjörn.

Það var auðsótt mál fyrir blaðamann að fá Guðbjörn til að stilla sér upp í myndatöku en þó með einu skilyrði. „Ég vil ekki svona „Guðbjörn fallinn“ fyrirsögn. Ég hætti að reykja fyrir þremur árum og er ekki fallinn enn,“ segir Guðbjörn og hlær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.