París kennir blaðafulltrúanum um ófarir sínar 8. maí 2007 09:45 París Hilton var dæmd til 45 daga fangelsisvistar fyrir helgi. Hún kennir blaðafulltrúa sínum um allt klúðrið og hefur rekið hann úr starfi. MYND/Getty
Hótelerfinginn París Hilton er afar ósátt við 45 daga fangelsisdóm sem hún fékk fyrir helgi. París var dæmd fyrir að rjúfa skilorð sem hún fékk þegar hún var tekin ölvuð undir stýri. Hilton kennir blaðafulltrúa sínum um fangelsisdóminn og hefur látið hann róa. „Ég skil ekki hvað gerðist því ég gerði bara það sem mér var sagt. Ég skrifa venjulega undir það sem fólk segir mér að skrifa undir," segir hótelerfinginn París Hilton, sem dæmd var til 45 daga fangelsisvistar á föstudag. París er svo brjáluð yfir dómnum að hún hefur rekið fjölmiðlafulltrúann sinn og kennir honum alfarið um ófarir sínar. Hin 26 ára París var dæmd til fangelsisvistar eftir að hún var fundin sek um að rjúfa skilorð og keyra án ökuleyfis. París hélt því statt og stöðugt fram fyrir rétti að hún hefði aldrei sest upp í bifreiðina ef hún hefði vitað að ökuleyfi hennar hefði verið afturkallað. Fjölmiðlar sýndu réttarhöldunum yfir París Hilton afar mikinn áhuga. Sannkallaður sirkus var þegar hún mætti til dómsuppkvaðningarinnar á föstudag.MYND/Getty Blaðafulltrúi Parísar, Elliott Mintz, bar vitni fyrir rétti og sagði að hvorki hann né skjólstæðingur sinn hefðu vitað að ökuleyfið hefði verið afturkallað eftir að hún var tekin ölvuð undir stýri í fyrra. Dómarinn var afar ósáttur við framburð Mintz, sagði hann „algjört rugl", þar eð pappírar hefðu fundist í bíl Parísar þar sem fram kæmi að hún hefði verið svipt ökuleyfi. París kenndi blaðafulltrúa sínum alfarið um þessi mistök, sagði að hann hefði tilkynnt henni að ökuleyfið hefði aðeins verið afturkallað í 30 daga og að henni væri áfram frjálst að keyra til og frá vinnu. Eftir að réttarhöldunum lauk og hún hafði verið dæmd í fangelsi rak París blaðafulltrúann Mintz. „Ég á þetta ekki skilið," sagði París um helgina. Hún hefur ákveðið að áfrýja dóminum.
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Lífið Fleiri fréttir Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Sjá meira