Bjartmarsklúbburinn telur bara toppmenn 5. maí 2007 03:00 Er að sögn Erps búinn að rokka með sömu Lionel Richie hárgreiðsluna síðan í Víetnamstríðinu. „
Sko, það er með allt þetta Idol og ógeð. Í öllu þessu hverfa textarnir einhvern veginn. Verða að sósu og skipta engu máli. svo fyrir tilviljun, heyrir maður gamla Bjartmarsstöffið...” segir Erpur Eyvindarson rappari með meiru. Erpur er einn talsmanna nýstofnaðra samtaka – Bjartmars-klúbbsins – sem er í raun aðdáendaklúbbur tónlistarmannsins Bjartmars Guðlaugssonar. Að sögn Erps eru eintómir toppmenn í þessu félagi og nefnir að handahófi Helga Seljan sjónvarpsmann, Andra Frey Viðarsson útvarpsmann, Þröst Heiðar Jónsson bassafant úr Mínus og Gústa Pink. „Hvað heitir Gústi Pink? Hann heitir bara Gústi Pink. Við höfum það þannig. Síðan er fullt af gaurum úr Mosfellsdalnum. Heil herdeild þar.” Bjartmarsklúbburinn vill hefja tónlistarmanninn Bjartmar til vegs og virðingar. Helgi Seljan segir Bjartmar hafa staðið á hátindi frægðar sinnar þegar þeir voru að komast til tónlistarlegs þroska. „Við ólumst upp við þessa tónlist. Svo var Bjartmar bara þurrkaður út úr íslenskri tónlistarsögu. Mjög ómaklega. Okkur finnst hann í það minnsta ekki hafa fengið að njóta sannmælis.” Klúbburinn er nýstofnaður. Haldnir hafa verið nokkrir undirbúningsfundir og er ýmislegt á prjónunum. Til dæmis er von á Bjartmari á mölina, en hann er búsettur á Eiðum fyrir austan, og mun hann þá afhenda klúbbmeðlimum áritað eintak af plötunni Í fylgd með fullorðnum sem til stendur að endurútgefa. „Svaðaleg plata. Við í klúbbnum fáum fyrstu eintökin árituð. Það er náttúrlega öfga vel unnið,” segir Erpur og upplýsir að drengur í þeirra röðum hafi hringt í Bjartmar reglulega og tilkynnt honum um hvað sé í deiglunni. Og er Bjartmar að sögn ánægður með þróun mála. Fréttablaðið náði hins vegar ekki í Bjartmar sem mun vera þessa dagana að jafna sig eftir aðgerð en er á góðum batavegi. „Bjartmar er alvöru “kíp it ríl” gæji. Hann er bara úti í sveit að spila á gítar. Mála og góður á því. Þú veist hvað ég er að meina?” útskýrir rapparinn Erpur. Og heldur áfram: „Bjartmar er enginn lobbíisti að troða sér í dómnefnd í idol. Honum er fokk sama enda búinn að rokka með sömu Lionel Richie hárgreiðsluna síðan í Víetnam stríðinu. Og ef það er ekki steitment ... Hefur rúllað í gegnum ótal mörg tískutímabil án þess að breyta hárgreiðslunni neitt. Það gerir hann að klassík.”
Mest lesið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira