Stærð þorskveiðistofns minni en áætlað var 12. apríl 2007 14:04
Útlit er fyrir að þorskárgangurinn í fyrra sé slakur líkt og árið 2005 en þó töluvert betri en árið 2004. Þá benda vísitölur til að stærð þorskveiðistofnsins sé nú um 10-15 prósentum minni en áður hefur verið áætlað. Þetta er meðal niðurstaðna í vorralli Hafrannsóknarstofnunar sem fram fór í febrúar og mars. Þar voru þrír togarar og tvö rannsóknarskip á ferð og mældu stærð botnfisksstofna á Íslandsmiðum. Fram kemur á heimasíðu Hafró að stofnvísitala þorsks hafi lækkað um 17 prósent frá mælingum í fyrra og sé vísitalan svipuð og árin 2000-2002. Ástæða þessa er sú að minna fékkst af ungfiski af árgöngum allt frá árinu 2001. Mest fékkst af þorski á Vestfjarðamiðum, djúpt út af Norður- og Norðausturlandi og í Hvalbakshalla fyrir suðaustan lan. Fyrsta mat á stærð 2006-árgangsins bendir til þessa að hann svipað stór og 2005-árgangurinn eða um 130-140 milljónir þriggja ára nýliða. Árgangurinn frá 2004 mælist sem fyrr mjög lélegur eða um 60-80 milljónir. Stofnvísitala ýsu var há líkt og undanfarin fjögur ár en lækkaði þó um 12 prósent frá fyrri mælingu og þá reyndist vísitala ufsa lægri en undanfarin þrjú ár. Vísitala steinbíts var hærri en síðustu þrjú ár en þá var hún í lágmarki. Enn fremur var stofnvísitala löngu sú hæsta sem mælst hefur í vorralli frá upphafi. Niðurstöðurnar sem kynntar eru nú eru til bráðabirgða en lokaúttekt á niðurstöðum og tillögur Hafrannsóknastofnunarinnar um aflamark fyrir næsta fiskveiðiár verða kynntar í byrjun júní.
Mest lesið Þrjátíu þúsund fengu hærri lífeyri í dag en síðustu mánaðamót Innlent Vill skipta út borgarstjórnarflokknum en halda Hildi inni Innlent Sólveig Anna sé sjálf sek um dyggðaskreytingar Innlent „Kynlífsdúkka“ af ungu barni meðal gagna máls gegn fyrrverandi ráðherra Erlent Biðjast ekki afsökunar Innlent Tilkynnt um hljóð úr neyðarsendi á flugi yfir Akranes Innlent Hútar réðust inn til Sameinuðu þjóðanna og tóku ellefu starfsmenn í hald Innlent Vara við því að Kennedy ógni heilsu landsmanna Erlent Telja Rússa hafa truflað flugvél forseta framkvæmdastjórnar ESB Erlent Friðarsúlan „gagnslaus“ og megi alveg eins heita „woke-súlan“ Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um hljóð úr neyðarsendi á flugi yfir Akranes Einfaldasta lausnin að bæta kjör geislafræðinga Veitur vara við svikaskilaboðum Áhersla lögð á andlega líðan eldra fólks sem sé lítið rædd Þrjátíu þúsund fengu hærri lífeyri í dag en síðustu mánaðamót Ákærður fyrir að bera sig ítrekað Segir nýtt kerfi stórbæta kjör lífeyrisþega Með á þriðja þúsund pilla í nammipokum Bein útsending: Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi tekur gildi Það sé skammtímalausn að lengja opnunartíma og senda fólk erlendis í geislameðferð Snærós ráðin framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar Sólveig Anna sé sjálf sek um dyggðaskreytingar Með óspektir og réðst á lögreglumann Vill skipta út borgarstjórnarflokknum en halda Hildi inni Hútar réðust inn til Sameinuðu þjóðanna og tóku ellefu starfsmenn í hald Biðjast ekki afsökunar Ferðamaður tekinn á tvö hundruð kílómetra hraða Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir árekstur við framúrakstur Friðarsúlan „gagnslaus“ og megi alveg eins heita „woke-súlan“ Netþrjótar hirða meira en hálfan milljarð og verktaki bendir á borgina Gamall Volvo stóð í ljósum logum í Breiðholti Varðturnarnir á bak og burt Mikill hugur hjá skógræktarfólki um allt land Fer hörðum orðum um „óveðursskýið“ Jóhann Pál Boðar sumarveður inn í september Google Maps beinir ökumönnum um Krýsuvíkurleiðina vegna villu Uppsagnir vegna veiðigjalda, hamfarakólnun og fagnaðarlæti Flokks fólksins Ísland standi frammi fyrir hamfarakólnun verði ekkert gert „Mikill léttir“ af nýjum þingflokksformanni Hafstraumar, menntun, húsnæðisverð og pólitíkin í haust á Sprengisandi Sjá meira