Einstæðar mæður og einhleypir karlmenn leita mest til Ráðgjafarstofu 12. apríl 2007 12:02
Einstæðar mæður og einhleypir karlmenn voru stærsti hópurinn sem leitaði til Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna í fyrra. Helstu ástæður voru greiðsluerfiðleikar vegna veikinda og offjárfestinga. Hátt í sex hundruð manns leituðu til Ráðgjafarstofunnar í fyrra og talið er að um fjórtán hundruð manns séu á bakvið umsóknirnar. Þetta kom fram á ársfundi Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna sem haldinn var á Grand hóteli í morgun. Samkvæmt ársskýrslunni leituðu 208 einstæðar mæður til Ráðgjafarstofu í fyrra. Þá leituðu 145 einhleypir karlmenn eftir aðstoð, tæplega hundrað og tuttugu hjón með börn og 84 einhleypar konur. Helstu ástæður fyrir greiðsluerfiðleikum voru vegna veikinda, offjárfestinga eða lítilla tekna. Um það bil 64% þeirra sem leita eftir aðstoð eru í atvinnu og búa í leiguhúsnæði. Ásta Sigrún Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofunnar, segir aðstæður einstæðra mæðra mjög erfiðar. Erfitt sé að vera með einar tekjur og ná endum saman. Ásta segir að Ráðgjafarstofa vilji láta kanna hvernig íslenska kerfið taki á móti barnafjölskyldum, til að mynda barnabætur og meðlög. Þá segir Ásta einhleypa karlmenn vera í miklum skuldum þegar þeir leiti til Ráðgjafarstofu. Þetta séu aðallega karlmenn með háa skatta og meðlagsskuldir. Þeir eigi erfitt með að fóta sig á vinnumarkaði og séu komnir í ákveðinn vítahring með fjármálin sín.
Mest lesið Íslendingur handtekinn á EM Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Hljóp á sig Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira