Bráðnandi jöklar gætu leyst hættulegar örveirur úr læðingi 24. ágúst 2007 14:23
Í Ekstra Bladet í dag er umfjöllun um þær hugsanlegu afleiðingar bráðnandi og hopandi jökla að slíkt muni leysa úr læðingi hættulegar örveirur og bakteríur eins og Spænsku veikina eða Svarta dauða. Sigurður B. Þorsteinsson yfirlæknir og formaður Sóttvarnaráðs segir að vissulega sé þessi fræðilegi möguleiki til staðar en benda verði á að engin dæmi séu um að þetta hafi raunverulega gerst. Í grein Ekstra Bladet undir fyrirsögninni "Dauðinn lúrir í ísnum" er vitnað til samtals sem sænska sjónvarpsstöðin TV4 átti við jöklafræðinginn Andy Hodson. "Það eru árþúsunda gamlar örveirur, sem vaxa hægt í ísnum og þegar ísinn bráðnar lifna þær við á ný," segir Hodson m.a. og bendir á að hættan sé einkum fólgin í að ónæmiskerfi mannsins eigi ekkert svar við þeim. Johan Giesecke yfirmaður sóttvarnaráðs Evrópubandalagsins segir að dæmi um óttastöðu sé til dæmis að spænska veikin blossi upp á ný og fólk smitist af henni eins og fyrir 100 árum. Hann segir hættuna á þessu þó óverulega. Sigurður B. Þorsteinsson bendir á í þessu sambandi að fyrir nokkrum árum hafi verið gerður út leiðangur til Svalbarða til að grafa upp lík fólks sem hafði dáið þar af spænsku veikinni. "Það fannst hinsvegar engin slík veira í þessum líkum," segir hann. Ætlunin var að nota veiruna ef hún fyndist til að mynda bóluefni gegn henni. Og Kaare Mölbak yfirlæknir við Statens Seruminstitut í Kaupmannahöfn er á sama máli og Giesecke hvað varðar hættuna af jöklabráðnuninni. Hann segir að sín fyrstu viðbrögð við þessum fregnum séu að þetta sé eitthvað sem kvikmyndaiðnaðurinn geti nýtt sér..."Þið ættuð að hringja til Ole Bornedal," segir hann við blaðamann Ekstra Bladet.
Mest lesið Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Innlent „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Fangavörður sendur í leyfi Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Innlent Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Erlent Þrjár stúlkur réðust á eina Innlent Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Innlent Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Erlent Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Þjónustubátur sökk í Tálknafjarðarhöfn Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Enn óvíst hvar miðja bakkans lendir Snjókomubakkinn nálgast borgina Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Ellefu í framboði í prófkjöri Pírata Býður sig fram í embætti varaformanns VG Hálfs árs fangelsi fyrir að berja mann með bifhjólakeðju Rúmar sex hundruð milljónir til sjö stjórnmálaflokka Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri Þrjár stúlkur réðust á eina Fangavörður sendur í leyfi Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Vantrauststillagan sýni vanhæfni meirihluta Vöku Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Ný bráðamóttaka að taka á sig mynd Miðflokki fatast flugið Vökuliðar frestuðu afgreiðslu á vantrauststillögu Samgöngustofa ógildir skoðanir á gúmmíbjörgunarbátum Tímamót og glæný könnun Vara við krefjandi aðstæðum á höfuðborgarsvæðinu „Dylgjur um menntastig“: Túlkun afbrotatölfræði innflytjenda þarfnist þekkingar Reykjadalur fær ekki styrki og fellir niður hluta starfsins Guðmundur Ingi í formlegar viðræður við Vor til vinstri Tekinn í tollinum með tíu kíló af ketamíni Reyna að hnýta lausa enda sem allra fyrst Endurnýjuðu gæsluvarðhald yfir grunuðum barnaníðingi Krafa að fá slökkvistöð í bæinn Sjá meira