Danahatur breiðist út 5. febrúar 2006 19:14
Danahatur breiðist út í múslímalöndum eins og eldur í sinu. Æstur múgur réðst inn í dönsku ræðismannsskrifstofuna í Líbanon í dag og kveikti í henni. Öfgasinnaðir trúarleiðtogar hvetja liðsmenn sína til morða og hryðjuverka í Danmörku. Dönsk stjórnvöld hafa gagnrýnt yfirvöld í Sýrlandi harðlega fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir árásir á sendiráð þeirra og hefur Bandaríkjastjórn tekið í sama streng. Óafsakanlegt sé að hægt sé að fremja svo mikil skemmdarverk á sendiráðum. Sýrlensk stjórnvöld segja þó Dani geta sjálfum sér um kennt. Og óeirðir héldu áfram í dag og réðst æstur múgurinn inn í dönsku ræðismannsskrifstofuna í Beirút í Líbanon og kveikti í þeim. Þar reyndu þó yfirvöld að koma í veg fyrir árásirnar en yfir tvö þúsund hermenn reyndu að fæla lýðinn frá en með litlum árangri. Yfir tuttugu manns særðust í átökunum en ekki er vitað til að nokkur hafi fallið. Dönsk yfirvöld hafa hvatt sitt fólk til að yfirgefa Líbanon og Sýrland. Öfgasinnaðir múslimar hafa hvatt liðsmenn sína til að drepa Dani, hvar sem þá er að finna. Gríðarleg spenna ríkir nú milli Dana og múslima en í Bretlandi, Tyrklandi, Írak, Pakistan og Afganistan hefur myndbirtungum einnig verið mótmælt. Slagorð gegn Danmörku hafa verið hávær og þess krafðist að teiknararnir, sem eru í felum undir verndarvæng lögreglunnar, verði teknir af lífi. En æsingurinn er ekki minni heimafyrir. Þar hafa svokallaðir þjóðernissinnar mótmælt veru múslima í landinu undir slagorðinu Danmörk fyrir Dani. Erfitt ætlar að reynast fyrir Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana að lægja öldurnar. Hann hefur persónulega lýst andúð sinni á myndunum en þó sagt að það sé ekki hans verk að segja ristjórn blaðanna hvað megi og hvað megi ekki birta. Stjórnvöld ýmissa múslimalanda hafa hvatt fólk til að kaupa ekki danskar vörur og Íranar hafa til að mynda ákveðið að öllum viðskiptasamningum við þau lönd sem birt hafa skopmyndirnar verði rift. Utanríkisráðuneytið segist ekki vita hvort Íslendingar séu á svæðinu en að vel sé fylgst með stöðu mála.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira