Abbas gæti hætt ef Hamas-liðar breyta ekki stefnu sinni 26. febrúar 2006 12:00 Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, við föstudagsbænir í Ramallah á Vesturbakkanum. MYND/AP
Líkur eru á að Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, segi af sér takist honum ekki fá Hamas-samtökin, sigurvegara þingkosninganna í síðasta mánuði, til að fara að kröfum alþjóðsamfélagsins. Abbas fer þess á leit við ríki heims að snúa ekki baki við Palestínumönnum í refsingarskyni fyrir lýðræðislegt val þeirra. Abbas var gestur í fréttaþætti á bresku sjónvarpsstöðinni ITV í gær. Þar gaf forsetinn það sterklega í skyn að hann myndi láta af embætti ef honum tækist ekki að fá Hamas-liða til að fara að kröfum vesturveldanna. Hann hvatti einnig ríki heims til að sýna þolinmæði og gefa liðsmönnum Hamas færi á að átta sig á þeirri stöðu sem þeir væru í nú sem ráðandi afl í palestínsku heimastjórninni. Það bæri engan árangur að króa þá af með miklu offorsi. Abbas sagði Ismail Haniyeh, forsætisráðherraefni Hamas, vísan og rökréttan mann. Hann hvatti vestræn ríki og samtök til að láta af því að refsa Palestínumönnum fyrir lýðræðislegt val þeirra með því að skerða fjárstuðning til heimastjórnarinnar. Abbas var spurður hvort hann vonaði að Íranar gætu hlaupið í skarðið og haldið heimastjórninni á floti ef nánast allur fjárstuðningur frá vestrænum ríkjum yrði skertur. Forsetinn svaraði því til að honum þætti verra ef heimastjórnin neyddist til að velja lið ef svo mætti segja. Hann bætti því við að stuðningur frá Íran myndi einn og sér ekki duga til að tryggja starfsemi heimastjórnarinnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Sjá meira