Erlent

Grunur um kúariðu í Svíþjóð

Grunur leikur á að fyrsta tilfelli kúariðu hafi greinst í Mið-Svíþjóð. Þegar hræ af tólf ára gamalli kýr var rannsakað komu í ljós einkenni sjúkdómsins.

Sýni hafa verið send til rannsóknarstöðvar Evrópusambandsins í Bretlandi svo hægt sé að fá staðfest hvort um kúariðu er að ræða. Svíþjóð er eitt fárra landa í Evrópu þar sem sjúkdómurinn hefur aldrei greinst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×