Erlent

Launamunur kynjanna innan ESB 15 prósent

Launamunur kynjanna í löndum Evrópusambandsins er 15 prósent samkvæmt nýrri skýrslu frá framkvæmdastjórn sambandsins. Þar kemur fram að hægt þokist í þessum málum og að margar konur innan ESB fari af vinnumarkaði vegna þess að þeim gangi illa að samtvinna vinnu og fjölskyldulíf. Aðildarríkin eru hvött í skýrslunni til að gera bragarbót í jafnréttismálum, en skýrslan verður kynnt leiðtogum landanna á fundi síðar í mánuðinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×