Erlent

Stjórn Berlusconis líklega fallin

MYND/AP
Kjörstöðum á Ítalíu var lokað fyrir nokkrum mínútum og benda útgönguspár til að ólívubandalag Romano Prodis hafi nauma forystu á hægrifylkingu Silvio Berlusconis forsætisráðherra. Ólívubandalagið hefur samkvæmt þessu fengið 49 prósent atkvæða en bandalag Berlusconis 45 prósent. Stjórn Berlusconis virðist með öðrum orðum fallin ef marka má þessar spár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×