Vilja að stuðlað verði að farsælum starfslokum 21. mars 2006 16:17
Framkvæmdarstjórn Starfsgreinasamband Íslands krefst þess að stjórnvöld hefjist strax handa við stefnumörkun um atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum. Í ályktun sem framkvæmdarstjórnin sendi frá sér segir að gera verði þá kröfu til íslenskra stjórnvalda og Bandaríkjahers sem atvinnurekanda að stuðlað verði að farsælum starfslokum allra starfsmanna og leita til leiða til að draga úr afleiðingum uppsagnanna með félagslegri aðstoð. Ályktun SSÍÁlyktun framkvæmdastjórnar SGS 21. mars 2006.,,Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands, SGS, lýsir undrun sinni á því hvernig Bandaríkjastjórn stóð að einhliða ákvörðun um að draga herþotur sínar og þyrlusveit burt frá Keflavík. Það virðist ljóst að varnarstöðin þjónar ekki tilgangi og verður lokað. Hversu skyndilega og hratt málið ber að er áfall fyrir þá rúmlega 600 einstaklinga og fjölskyldur þeirra sem verða fyrir barðinu á hópuppsögnunum, sem og atvinnulífið á Suðurnesjum. Þess vegna verður að beita öllum ráðum til að milda áhrif uppsagnanna.Gera verður þá kröfu til íslenskra stjórnvalda og Bandaríkjahers sem atvinnurekanda, að þau stuðli að farsælum starfslokum allra starfsmanna, sérstaklega þeirra sem ekki eiga afturkvæmt til nýrra starfa. Fara þarf í hvívetna eftir ákvæðum laga um hópuppsagnir og leita leiða til að ,,draga úr afleiðingunum uppsagnanna með hjálp félagslegra aðgerða sem hafa það m. a. að markmiði að auðvelda flutning í önnur störf eða endurmenntun starfsmanna sem áformað er að segja upp."Vegna brottfarar varnarliðsins verða stjórnvöld strax að taka af skarið um nýtt framtíðarhlutverk Keflavíkurflugvallar. Framkvæmdastjórn SGS telur að fjölmörg tækifæri séu til atvinnuuppbyggingar á svæðinu. Þau tækifæri og þá atvinnuuppbyggingu, verði að skoða og vinna í samvinnu við heimamenn og innlendar og alþjóðlegar stofnanir sem láta sig samgöngur og öryggi þeirra varða.Einnig má nefna tækifæri, sem tengjast orkumálum og umhverfismálum norðurslóða, sem dæmi um mikilvæg verkefni í alþjóðlegu samhengi sem Ísland getur gegnt miklu hlutverki í vegna legu sinnar og jarðfræðilegara eignileika, einkum á Reykjanesi.Framkvæmdastjórn SGS, gerir þá kröfu til stjórnvalda að strax verði hafist handa við stefnumörkun um atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum og að einblína ekki um of á varnar- og öryggismál, þegar framtíðarsýn á Suðurrnesjum eru til skoðunar."
Fréttir Innlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Fleiri fréttir Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Sjá meira