OR samþykkir að kanna orkusölu til Helguvíkur 30. mars 2006 18:17
R-listaflokkarnir klofnuðu innan stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur nú síðdegis þegar stjórnin gaf grænt ljós á að stefna að raforkusölu til álvers í Helguvík. Fulltrúi vinstri grænna, sem var einn á móti, segir niðurstöðuna í andstöðu við samþykkt flokkanna í fyrra.Stjórn Orkuveitunnar samþykkti, með fimm atkvæðum gegn einu, þá tillögu Alfreðs Þorsteinssonar stjórnarformanns að fela forstjóra að gera úttekt á möguleikum Orkuveitunnar til að afla raforku til stóriðju í Helguvík. Samkvæmt samþykktinni á að kanna mögulega orkuöflun, flutningsleiðir, verð og hagkvæmni, öflun rannsóknaleyfa, áhrif virkjana á umhverfi og áhrif framkvæmda í tengslum við verkefnið á atvinnulífið. Þótt skilyrt sé að niðurstöðuna eigi að kynna stjórn og eigendum er samþykktin í raun stefnumarkandi um það að Orkuveitan er tilbúin að koma að álversuppbyggingu á Suðurnesjum.Það var í maímánuði í fyrra, fyrir tíu mánuðum, sem R-listaflokkarnir stóðu sameiginlega að þeirri ákvörðun að taka ekki þátt í orkusölu til Helguvíkur. Núna hafa Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn kúvent í málinu.Fulltrúi vinstri grænna, Tryggvi Friðjónsson, segir niðurstöðuna óheppilega og að hún sé í andstöðu við samþykkt fulltrúa R-listans í stjórn Orkuveitunnar í fyrra. Hann lét bóka að hann teldi að skoða yrði stefnu Orkuveitunnar í orkusölu til stóriðju með heildstæðum hætti og fjalla ætti um málið á vettvangi meirihlutaflokkanna í borgarstjórn.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira