Vestfirðingar buðu lægst í Djúpveg 12. desember 2006 18:45
Verktakar á Ísafirði buðu lægst í gerð Djúpvegar um Mjóafjörð, Vatnsfjörð og Reykjanes en tilboð voru opnuð í dag. Þetta er stærsta vegagerð í fjórðungnum frá því Vestfjarðagöngum lauk og felst meðal annars í gerð svipmikillar stálbogabrúar yfir Mjóafjörð. Brúin yfir Mjóafjörð verður sennilega eitt af einkennistáknum Vestfjarða í framtíðinni. Hún verður eitt hundrað metra löng og boginn mun teygja sig 17 metra upp yfir brúargólfið. Þessi brú er þó aðeins hluti þess verksins. Önnur sextíu metra brú verður byggð yfir Reykjafjörð og þriðja brúin, tíu metra löng, yfir Vatnsfjarðarós, auk þess sem fimmtán kílómetra langur nýr vegur verður lagður milli Reykjaness og Mjóafjarðar. Ný veglína þýðir að þjóðvegurinn mun framvegis liggja allt árið um hið fornfræga höfuðból, Vatnsfjörð, og ennfremur mun vegurinn liggja um hlaðið á Reykjanesskóla. Þetta er með stærstum verkum sem boðin hafa verið út í vegagerð hérlendis en tilboð voru opnuð í dag. Tilboðsopnun fór fram bæði í Reykjavík og á Ísafirði og var sjónvarpað á milli staða. Þegar átta tilboð höfðu verið lesin upp í Reykjavík var Ístak lægst og átti þá bara eftir að opna eina tilboðið sem skilað var inn á Ísafirði. Reyndist það á endanum vera lægst en það kom frá KNH á Ísafirði og Vestfirskum verktökum og hljóðaði upp á rétt liðlega einn milljarð króna, sem var 84 prósent af kostnaðaráætlun. Ístak og Háfell komu næst en hæsta boð áttu Íslenskir aðalverktakar.Framkvæmdir hefjast í vetur og á þeim að ljúka innan tveggja ára. Menn ættu því að geta ekið um nýja veginn haustið 2008.Nánar á síðu Vegagerðarinnar.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“