Innlent

Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp til að bæta stöðu erlendra starfsmanna

MYND/Stéfán

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag frumvarp Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra.

Fram kemur í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu að markmiðið með frumvarpinu sé að veita íslenskum stjórnvöldum betri sýn yfir stöðuna á innlendum vinnumarkaði hvað varðar starfsemi erlendra þjónustufyrirtækja ásamtfjölda erlendra starfsmanna sem starfa hjá slíkum fyrirtækjum hér á landi. Frumvarpið nær til fyrirtækja sem hafa staðfestu í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, EFTA-ríki eða Færeyjum og sendir starfsmann tímabundið hingað til lands í tengslum við veitingu þjónustu. Lögin gilda um starfsmannaleigur til viðbótar við gildandi lög þær.

Samkvæmt frumvarpinu verður fyrirtækið að upplýsa Vinnumálastofnun átta virkum dögum áður en það veitir þjónustuna ef hún varir lengur en tíu virka daga hér á landi. Þá skal Vinnumálastofnun tilkynnt um sérstakan fulltrúa fyrirtækisins hér á landi ef fyrirtækið veitir þjónustu hér lengur en í fjórar vikur á hverjum tólf mánuðum og sex eða fleiri starfsmenn veiti þjónustuna. Ef notendafyrirtæki fær ekki staðfestingu Vinnumálastofnunar hjá fyrirtæki um að fyrirtækið eða undirverktakar hafi veitt Vinnumálastofnun upplýsingar er notendafyrirtækinu skylt að láta Vinnumálastofnun vita.

Enn fremur kemur fram í tilkynningunni að markmið frumvarpsins sé að erlendir starfsmenn fái laun og önnur starfskjör í samræmi við íslensk lög og íslenska kjarasamninga á meðan þeir starfa hér á landi, þar með talin réttindi í tengslum við veikindi og/eða slys og bætur vegna andláts, varanlegs líkamstjóns og tímabundins missis starfsorku. Undanþágu er unnt að fá við vissar aðstæður og verði viðkomandi starfsmaður hér á landi í átta daga eða skemur.

Vinnumálastofnun hefur eftirlit með framkvæmd laganna og getur kallað eftir upplýsingum frá fyrirtæki í þágu eftirlits enda hafi stofnuninni borist rökstudd kvörtun um að fyrirtæki hafi brotið gegn ákvæðum laganna. Ef ekki er farið að fyrirmælum Vinnumálastofnunar getur hún krafist þess að lögregla stöðvi vinnu tímabundið eða loki starfsemi fyrirtækisins hér á landi þangað til úrbætur hafa verið gerðar.

Frumvarpið er afrakstur vinnu starfshóps sem félagsmálaráðherra skipaði í júní 2006 til að fara yfir málefni útlendinga á íslenskum vinnumarkaði. Í starfshópnum eru fulltrúar Alþýðusambands Íslands, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Bandalags háskólamanna, dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, fjármálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka atvinnulífsins auk fulltrúa félagsmálaráðuneytisins.

„Ekki síst í ljósi Hæstaréttardóms í gær varðandi starfsmannaleigur og kjör erlends starfsmanns er nauðsynlegt að herða tökin, skerpa ábyrgð fyrirtækja og treysta innviði vinnumarkaðarins," segir Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra í tilkynningunni. „Eins og ég hef bent á hefur um langt skeið verið unnið að því í ráðuneytinu að skýra og bæta stöðu erlends verkafólks hér á landi. Þetta frumvarp er meðal annars afrakstur af þeirri vinnu."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×