Feitari en sú fyrri 24. október 2006 20:30
Önnur langreyðurin, sem búið er að veiða eftir að hvalveiðar í atvinnuskyni hófust að nýju, kom að landi um miðjan dag. Hún er jafn stór þeirri fyrri en feitari. Hvalur 9 kom að hvalstöðinni í Hvalfirði um klukkan hálf þrjú í dag með langreyðina sem veiddist í gær í eftirdragi. Óhætt er að segja að hvalurinn hafi trekkt að því við hvalstöðina hafi verið fjöldi fólks þó klukkan hafi verið um þrjú á þriðjudegi og töluvert kalt. Lítið fór fyrir mótmælum andstæðinga hvalveiðanna. Kristján Loftsson, stjórnarformaður Hvals hf., var ánægður með aflann. Hvalurinn sem veiddist nú væri jafn langur og sá síðasti eða 68 fet, en sjáanlega feitari sem sé mun betra. Í fréttum NFS í gær greindi sendiráðunautur Sendiráðs Japans frá því að japönsk stjórnvöld hefðu ekki gefið leyfi fyrir innflutningi hvalkjöts en þangað ætlar Krisján að selja kjötið. Hann segir að sér vitandi hafi alltaf verið frjáls innflutningur á hvalkjöti þangað en til Japans hafi Íslendingar ekki haft neitt að bjóða síðan árið 1990 en hvalveiðum hætt hér á landi 1989. Það komi svo í ljós hvernig gangi að selja til Japans. Kristján biður þá sem hafa áhyggjur af því að hægt verði að koma kjötinu í verð að hætta því og hugsa um eitthvað annað. Klukkan rúmlega hálf fimm í dag hélt Hvalur 9 aftur út á miðin því þar er enn hvalur þrátt fyrir að langt sé liðið á október. Kristján segir talað um að þetta sé fyrsta vetrarvertíðin í hvalnum. Hann segir að vænta megi að fleiri hvalir veiðist á sömu slóðum og hinir tveir.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira