Stjórnarandstaðan sameinast um mál 2. október 2006 11:42
Stjórnarandstaðan sameinast um mál Þingflokkar Samfylkingarinnar, Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs (VG) og Frjálslynda flokksins kynna í dag sameiginlegar áherslur sínar í upphafi þingvetrar og undirstrika með táknrænum hætti samstöðu sína gegn núverandi ríkisstjórn. Stjórnarandstaðan mun á þessu þingi flytja nokkur sameiginleg grundvallarmál auk þess að standa sameiginlega að kosningum í nefndir og ráð á vegum þingsins. Þingflokkarnir munu leggja fram sameiginleg þingmál og voru þrjú þeirra kynnt sérstaklega á sameiginlegum blaðamannafund þingflokkanna í Alþingishúsinu í dag. Í fyrsta lagi munu þingflokkarnir leggja fram sameiginlega tillögu til þingsályktunar um nýja framtíðarskipan lífeyrismála, sem hefur það að markmiði að bæta kjör aldraðra og öryrkja með markvissum aðgerðum. Í öðru lagi munu fulltrúar þingflokkanna í umhverfisnefnd þingsins leggja fram sameiginlega tillögu til þingsályktunar um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum, stærsta og gróðursælasta votlendi á hálendi Íslands. Í þriðja lagi munu þingmenn flokkanna flytja frumvarp um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Frumvarpið miðar að því að vinna gegn launaleynd, kynbundnum launamun og öðru misrétti kynjanna. Formenn þingflokkanna munu sameiginlega leggja fram tillögu varðandi stríðið í Írak og einnig verður á næstunni kynnt sameiginleg tillaga er snýr að raforkuverði.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Sjá meira