Kúabændur gagnrýna hugmyndir um lækkun matvælaverðs 25. september 2006 19:59 MYND/Vísir
Landssamband kúabænda gagnrýnir harðlega hugmyndir Samfylkingarinnar um aðgerðir til að lækka matvælaverð. Í yfirlýsingu sem samtökin hafa sent frá sér er bent á afleiðingar þess ef stefnunni verði hrint í framkvæmd. Samfylkingin ætlar að leggja fram þingsályktunartillögu á haustþingi til lækkunar matarverðs. Í henni fellst afnám vörugjalds og tolla í áföngum auk lækkunar matarskatts. Segja þingmenn Samfylkingarinnar ekki hægt að líða það lengur að vöruverð hér á landi sé fimmtíu prósentum hærra en í nágrannlöndunum. Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda, segir í tilkynningu frá samtökunum að ekki sé hægt að bera saman aðstæður annarra þjóða og Íslendinga. Hann gagnrýnir orð Önnu Kristínar Gunnarsdóttur, þingkonu Samfylkingarinnar, sem segir Íslendinga geta litið til góðrar reynslu Nýsjálendinga af því að fella niður stuðning við landbúnað. Þórólfur segir afkastagetu jarðarinnar og loftslag hafa mikið að segja um hvað sé ræktað og hver framleiðslugetan sé. Því sé ekki hægt að leggja að jöfnu aðstæður til landbúnaðar á Íslandi og á Nýja-Sjálandi. Þórólfur segir þessi orð Önnu Kristínar sýna ótakmarkað hugmyndaflug. Hann bendir á að um tíu þúsund manns starfi við landbúnað í kjördæmi Önnu Katrínar, Norðvesturkjördæmi, og að hugmyndir Samfylkingarinnar hafi gríðarleg áhrif á þennan hóp. Þórólfur bendir jafnframt á að samningar um landbúnaðarmál á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, hafi siglt í strand. Það staðfesti að þjóðir heimsins séu að takast á og séu þar með ósammála mati Önnu Katrínar um að nýsjálenska leiðin sé þeim fær.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Það er ekkert bjart yfir okkur akkúrat í dag“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira