Segir laun ungra lækna hafa hækkað langmest 1. júní 2006 22:30
Læknanemar á fjórða og fimmta ári mættu ekki til vinnu sinnar á Landspítalanum í dag til þess að mótmæla því sem þeir kalla kjaraskerðingu af hálfu stjórnenda spítalans. Lækningaforstjórinn segir hins vegar að laun ungra lækna hafi hækkað langmest í nýgerðum kjarasamningum. Læknanemarnir hafa hingað til fengið greidd laun sem hlutfall af launum læknakandídata auk 12 prósenta vaktaálags og greiðslu í 10 daga fyrir undirbúningsnámskeið fyrir vinnu á spítalanum. Með nýjum kjarasamningi í vor hækkuðu laun læknakandídata og þar með laun læknanema. Þegar læknanemar leituðu eftir sömu ákvæðum og í fyrri samningum sögðust forstöðumenn spítalans ekki hafa fjármagn til þess. Þeir gætu aðeins greitt átta prósenta vaktaálag og borgað sjö daga af námskeiðinu. Þetta sætta læknanemar sig ekki við. Erik Brynjar Eriksson, formaður Félags læknanema segir þá ekki vera að biðja um launahækkun heldur halda því sem þeir hafi haft. Þeir vilji ekki að bilið milli læknakandídata og læknanema aukist. Læknanemar hafa sent yfirvöldum á spítalanum tilboð um að þeir haldi 12 prósenta vaktaálagi og fái greitt fyrir fimm daga af undirbúningsnámskeiðinu en því hafna spítalayfirvöld. Erik bendir á að fjarvera læknanemananna, sem eru 34, hafi áhrif á sex til sjö deildum og það séu deildir þar sem mannekla hafi verið fyrir. Jóhannes M. Gunnarsson, lækningaforstjóri Landspítalans, segir að stjórnendur verði að fylgja ákveðnum reglum frá fjármálaráðuneytinu um laun læknanna og ekki verði lengra seilst. Ungir læknar hafi fengið langmestar hækkanir í kjarasamningum í vor og þeir verði ekki fyrir kjaraskerðingu. Aðspurður sér hann ekki neina leið opna í deilunni. Formaður Félags læknanema segist vonast eftir áframhaldandi viðræðum en óvíst sé hvort það verði af þeim. Eins og staðan sé í kvöld mæti þeir ekki til vinnu á morgun.
Fréttir Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira