Fótbolti

Ítalía

Ítalir eru í E riðli með Tékkum, Bandaríkjamönnum og Ganamönnum. Þessi riðill gæti reynst erfiður þó reikna flestir með því að Ítalir og Tékkar fari áfram upp úr honum. Ítalir eru í 14. sæti á styrkleikalista FIFA en Tékkar í öðru og Bandaríkjamenn í því fjórða.

Eftir skammarlegt tap fyrir Suður Kóreumönnum í síðustu keppni má reikna með því að Ítalir ætli sér stóra hluti á þessu móti. Það iðulega nóg af hæfileikum í Ítölskum landsliðum spurningin er frekar hvort þeir nái að spila saman allir sem einn.

Fyrrverandi stjóri Juventus Marcelo Lippi stýrir liði Ítala. Hann hefur fimm sinnum unnið ítölsku deildina og einu sinni meistaradeildina með Juventus. Nú vill hann bæta heimsmeistaratitli í verðlaunasafnið sitt.

Það sem kom einna mest á óvart við val á liðinu var valið á Francesco Totti en hann fótbrotnaði í leik þann 19. febrúar og gekkst undir aðgerð í kjölfarið. Hann er á batavegi og vonast er til þess að hann verði fullfrískur þegar keppnin hefst.

Það kann að koma á óvart en Luca Toni er lykilmaður liðsins, hann hefur verið í banastuði fyrir Fiorentina í vetur. Ítalir treysta á að hann mæti til leiks í sínu besta formi og raði inn mörkum.

Fyrirliði: Fabio Cannavaro

Lykilmaður: Luca Toni

Gæti slegið í gegn: Alberto Gilardino

Leikmannahópurinn:
1 Gianluigi Buffon

2 Cristian Zaccardo

3 Fabio Grosso

4 Daniele De Rossi

5 Fabio Cannavaro

6 Andrea Barzagli

7 Alessandro Del Piero

8 Gennaro Gattuso

9 Luca Toni

10 Francesco Totti

11 Alberto Gilardino

12 Angelo Peruzzi

13 Alessandro Nesta

14 Marco Amelia

15 Vincenzo Iaquinta

16 Mauro German Camoranesi

17 Simone Barone

18 Filippo Inzaghi

19 Gianluca Zambrotta

20 Simone Perrotta

21 Andrea Pirlo

22 Massimo Oddo

23 Marco Materazzi



Fleiri fréttir

Sjá meira


×