Tvær konur efstar á listum 15. maí 2006 12:15 Eþór Arnalds. Mynd/E.Ól
Tvær konur leiða nú aðalstjórnmálafylkingarnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Árborg, eftir að Eyþór Arnalds, oddivti sjálfstæðismanna, dró sig í hlé vegna ölvunaraksturs. Hann ætlar hins vegar að taka sæti í bæjarstjórninni þegar hann hefur tekið út refsingu fyrir brotið. Eyþór náði fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins með afgerandi meirihluta í prófkjöri í vetur og fylgi flokksins hefur aldrei imælst meira en í könnun NFS nýverið, eða rúm 50%. Eyþór taldi þó ekki sjálfgefið að hann yrði bæjarstjóri, þótt flokkurinn næði hreinum meirihluta. Þórunn Jóna Hauksdóttir, sem skipar annað sæti listans, og mun frá og með þessari stundu leiða kosningabaráttu flokksins, segist í viðtali við NFS heldur ekki líta svo á að hún verði sjálfkrafa bæjarstjóri þótt flokkurinn næði hreinum meirihluta. Það sé heldur ekki hefð fyrir pólitískum bæjarstjórum á Selfossi. Nýverið skoruðu ýmis félagasamtök á Ragnheiði Hergeirsdóttur, oddvita Samfylkingarinnar í Árborg, sem er sameiginlegt sveitarféalg Selfoss, Eyrarbakka, Stokkseyrar og Sandvíkurhrepps, að bjóða sig fram sem sveitarstjórakandídat. Hún varð ekki við því en sagðist vissulega vera reiðubúin að axla slíka ábyrgð ef viðræður eftir kosningar leiddu til þess. Fylgi Samfylkingarinnar hefur líka vaxið umtalsvert fá síðustu kosningum samkvæmt skoðanakönnun NFS þar sem flokkurinn mældist með tæplega 22%fylgi. Það má því segja að þær Ragnheiður og Þórunn Jóna leiði samanlagt yfir 70 prósent kjósenda í Árborg til kosninganna eftir þréttán daga. Eyþór, sem tekinn var fyrir ölvunarakstur í fyrrinótt og vistaður í fangageymslum ásamt unnustu sinni, átti fjögurra klukkustunda fund með helstu leiðtogum flokksins á landsvísu og í Árborg í gærkvöldi. Ólafur Hafsteinn Jónsson, formaður Fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Árborg, sagði í viðtali við NFS í morgun að flokkurinn myndi halda sínu striki þrátt fyrir þetta áfall. Ekki yrði hróflað við framboðslistanum, enda væri það ekki heimild samkvæmt lögum. Sjálfstæðsimenn styddu ákvörðun Eyþórs og áform hans.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira