Innlent

Innganga í ESB getur bætt stöðu íslenskra sauðfjárbænda

MYND/Örn

Framleiðslukostnaður lambakjöts er helmingi lægri hér á landi en í Noregi, að sögn sérfræðings Bændasamtakanna. Hann segir að innganga Íslands í Evrópusambandið myndi hugsanlega bæta stöðu íslenskra sauðfjárbænda.

Aðalfundur Landsamtaka sauðfjárbænda fór fram í Bændahöllinni, sem dags daglega gengur undir nafninu Hótel Saga, í gær og í dag. Að loknum venjulegum fundarstörfum voru flutt hin ýmsu erindi. Á meðal þeirra var kynning Daða Más Kristóferssonar, sérfræðings á ráðgjafasviði Bændasamtakanna, á rannsóknum sem hann hefur gert á framleiðslukostnaði lambakjöts hér á landi, og í nágrannalöndunum.

Daði segir það hafa sýnt sig að frumframleiðslukostnaður á Íslandi er mun lægri en til dæmis í Noregi og svipaður því sem hann gerist lægstur í Evrópusambandslöndum eins og í Bretlandi. Hann segir að ef annar kostnaður eins og kostnaður við slátrun lækki til jafns við það sem gerist til dæmis í Bretlandi þá eigi Íslendingar töluverð sóknarfæri í innflutningi á þann markað.

Daði segir erfitt að segja til um hvort það myndi það hafa jákvæð áhrif fyrir íslenska sauðfjárbændur ef evran yrði tekin upp hér á landi. Óvíst er hvað kæmi út úr aðildarviðræðum Íslendinga og Evrópusambandsins. Ef Íslendingar fái hins vegar sambærileg kjör á við bændur í Bretlandi þá sé ekki útlokað að upptaka evrunnar hefði jákvæð áhrif á íslenska sauðfjárbændur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×