Fundurinn fyrsta skrefið 31. mars 2006 16:02 f.v. Carol van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, James Townsend, fulltrúi bandaríska varnarmálaráðuneytisins, og Mark A. Pekala, fulltrúi bandaríska utanríkisráðuneytisins. MYND/Vilhelm Gunnarsson
Fundi viðræðunefnda Bandaríkjamanna og Íslendinga um framtíð varnarsamstarfs ríkjanna lauk í utanríkisráðuneytinu á þriðja tímanum í dag. Fulltrúi Bandaríska utanríkisráðuneytisins sagði eftir fundinn að hann hefði aðeins verið fyrsta skrefið í löngu ferli. Frekari viðræður væru fyrirhugaðar í Bandaríkjunum og á Íslandi næstu vikur og mánuði. Helstu fulltrúar bandarísku viðræðunefndarinnar svöruðu spurningum fjölmiðlamanna eftir fundinn. Fyrst til svara var Carol van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, en hún leiðir viðræðurnar fyrir hönd Bandaríkjamanna. Hún sagði viðræðurnar í dag hafa verið uppbyggilegar og árangursríkar. Þær sýndu vilja beggja ríkja til að styrkja samband sitt og samvinnu í öryggismálum til þess að þau geti svarað ógnum nútímans. Auk sendiherrans voru til svara þeir Mark A. Pekala, fulltrúi bandaríska utanríkisráðuneytisins, og James Townsend, fulltrúi varnarmálaráðuneytisins. Mark Pekala sagði margt eftir í viðræðunum og frekari fundir fyrirhugaðir. Aðspurður sagði hann þegar liggja fyrir áætlun um fyrirkomulag varna Íslands af hálfu Bandaríkjamanna. Hún feli í sér notkun hvaða tækja og tóla sem herinn hafi til umráða hvar sem er í heiminum. Hann sagði að á fundinum í dag hefði meðal annars verið rætt um hernaðarmátt Bandaríkjamanna um allan heim og getu æðstu stjórnenda hans til að færa hvaða tæki og tól sem er hvert sem er í heiminum þar sem þeirra reynist þörf. Hann bætti því við að Bandaríkjamenn hefðu allta haft áætlanir upp um fyrirkomulag varna bandamanna sinna.
Fréttir Innlent Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Fleiri fréttir Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Sjá meira