Innlent

Sinueldur við Höfn

Þó nokkur eldur logaði í sinu í Óslandi nærri Höfn í Hornafirði í morgun. Allt tiltækt slökkvilið Hornafjarðar og var sent á svæðið en mikill eldur logaði beggja vegna við svo kallaðan Gónhól. Vegna vindáttar tókst vel að hefta útbreiðslu eldsins en hann teygði sig eftir þurri sinunni allt niður í fjöru. 

Lögreglan á Höfn segir að allt bendi til að kviknað hafi í út frá logandi sígarettu. Óslandsvegur er vinsæll áningastaður ferðamanna, en þaðan er gott útsýni að innsiglingunni til Hafnar. Miklar þurrkar eru víða um land og töluverð hætta á sinueldum. Fólk ætti því að fara varlega með eld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×