Bætt hefur í sinueldinn í morgun 31. mars 2006 12:01 MYND/Kristján J. Kristjánsson
Slökkviliðsstjórinn í Borgarnesi býst við að slökkvistarf vegna sinueldanna á Mýrum í Borgarfirði muni standa alla helgina en bætt hefur í eldinn í morgun, eftir að hann virtist vera í rénun í nótt. Slökkviliðsmenn, bændur og lögreglumenn börðust við eldinn langt fram á nótt, en þegar vind lægði, tóku slökkviliðsmenn sér langþráða hvíld. Bændur beittu meðal annars haugsugum til að sprauta vatni og verja þannig útihús og íbúðarhús sín, en tæpt stóð að eldurinn næði í sjötíu kúa fjós að Laxárholti og íbúðarhúsið í Skíðsholti. Til þess að hefta útbreiðslu eldsins enn frekar var miklu vatni sprautað á svonefndan Sauraveg í von um að eldurinn kæmist þar ekki yfir, en í morgun gerði hann það á tveimur stöðum þannig að aðstæður eru breyttar til hins verra, að sögn Bjarna Þorstienssonar slökkviliðsstjóra.Eldurinn hefur nú þegar farið yfir marga tugi hektara lands á mörgum jörðum og vísast skemmt mikið af smárunnum lyngs og fjalldrapa, en ekki er vitað til að trjágróður hafi skemmst. Þá loga glæður víða í mosa og hætt er við öskufoki, ef enn bætir í vindinn. Mikið af gróðurhúsaefnum hefur losast út í andrúmsloftilð við brunann og er mökkurinn svo mikill að hann sést úr úr gerfitunglum NASA- bandarísku geimferðastofnunarinnar.HeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaHeiðaGeimferðastofnun Bandaríkjanna NASA rekur gervitunglin Terra og Aqua, en brautir þeirra liggja yfir Ísland dag hvern. Myndir frá þessum tunglum eru m.a. notaðar til þess að staðsetja skógarelda á jörðu niðri. Sinueldurinn á Mýrum 30. mars 2006 kemur vel fram á þessum myndum. Veðurathuganakort frá hádegi sýnir að norð-austlægar áttir voru ríkjandi þann 30. Í Fíflholtum skammt frá þeim stað sem eldur breiddist fyrst út er starfrækt veðurathugunarstöð. Þar blés af norðaustri um 14 m/s um hádegi í gær, en síðan dró þar smám saman úr vindi og um miðnætti var hann um 5 m/s. Sinueldurinn kom fram á mynd sem Terra tók klukkan 12:55 og er reykjarstrókurinn frá brunanum vel greinilegur þar sem hann blæs til suðvesturs. Litilir rauðir ferningar sýna hvar viðvörunarkerfi NASA staðsetti eld.Veðurstofa Íslands
Fréttir Innlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira