Innlent

Átelja KR harðlega fyrir strippdans

MYND/Hilmar Þ

Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur átelur harðlega að Knattspyrnufélag Reykjavíkur hafi keypt til sín skemmtiatriði sem gengur út á hlutgervingu og lítillækkun kvenna. Vísað er til karlakvölds KR á dögunum þar sem keypt var atriði frá Goldfinger sem fólst í því að bjóða upp föt af stúlkum sem stóðu loks uppi brjóstaberar frammi fyrir fullum sal af körlum í íþróttahúsi. Vonast ÍTR til þess að KR láti af slíkri skemmtun og að öll íþróttafélög borgarinnar axli ábyrgð á íþróttaumhverfi þar sem virðing er borin fyrir öllum, konum og körlum.

Bókunin er svohljóðandi:

Íþrótta- og tómstundaráð sér ástæðu til að átelja harðlega þegar íþróttafélag sem nýtur opinberra fjárframlaga til sinnar starfsemi og er aðili að uppeldi og viðhorfsmótun barna og ungmenna í borginni kaupir til sín skemmtiatriði sem gengur út á hlutgervingu og lítillækkun kvenna. Vísað er til karlakvölds KR á dögunum þar sem keypt var atriði frá Goldfinger sem fólst í því að bjóða upp föt af stúlkum sem stóðu loks uppi brjóstaberar frammi fyrir fullum sal af körlum í íþróttahúsi. ÍTR væntir þess að KR láti af slíkri skemmtun og öll íþróttafélög borgarinnar axli ábyrgð á íþróttaumhverfi þar sem borin er virðing fyrir körlum og konum, stelpum og strákum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×