Innlent

Sundabraut verði fjórar akreinar

MYND/Sigurður Valur

"Aldrei hefur annað verið í umræðunni en að Sundabraut verði fjórar akreinar" segir í yfirlýsingu sem íbúasamtök Grafarvogs hafa sent frá sér. Í yfirlýsingunni kemur enn fremur fram að öll vinna samtakanna hefur miðast við þetta og að þeirra mati eigi að hraða sem kostur er að leggja brautina alla leið upp á Kjalarnes. Hins vegar leggja samtökin mikla áherslu á að Hallsvegur verði ekki tengdur Vesturlandsvegi og Sundabraut því það myndi kljúfa Grafarvoginn í tvennt. Samtökin leggja til að Fossaleynir verði tengdur nýlögðu hringtorgi á Vesturlandsvegi. Þannig verður brugðist við aukinni umferð að Egilshöll og umferðaröryggi við Víkurveg myndi aukast. þá leggjast samtökin alfarið gegn öllum uppfyllingum við Gufunes og vinna íbúasamtökin nú að því að fjörur Graafarvogs verði friðaðar.

 



Yfirlýsingin í heild sinni

Samþykkt var í Samráðshópi um lagningu Sundabrautar að ræða ekki um vinnu hópsins í fjölmiðlum, á meðan að hópurinn starfaði. Það stendur af hálfu Íbúasamtaka Grafarvogs.

Þó getum við tekið efirfarandi fram, þar sem það lá fyrir af hálfu Íbúasamtaka Grafarvogs, áður en samráðshópurinn tók til starfa:

Aldrei hefur annað verið í umræðu af okkar hálfu, en að Sundabraut verði fjórar akreinar og að hraðað yrði sem kostur væri, að leggja brautina alla leið upp á Kjalarnes.

Öll vinna okkar við verkefnið hefur miðast við það.

Íbúasamtök Grafarvogs leggja hinsvegar mikla áherslu á það, að Hallsvegur verði ekki tengdur Vesturlandsvegi og Sundabraut.

Þannig yrði opnað fyrir þungaflutninga frá Vesturlandsvegi við Úlfarsfell að Sundabraut.

Það myndi kljúfa Grafarvogshverfi í tvennt.

Við fögnum því stuðningi við þær áherslur Íbúasamtaka Grafarvogs að þungaflutningum og annari umferð verði ekki beint í gegnum Grafarvogshverfi um Hallsveg að Sundabraut.

Við leggjum hinsvegar til að Fossaleynir verði tengdur nýlögðu hringtorgi á Vesturlandvegi.

Þannig verði brugðist við síaukinni umferð sem beinist að Egilshöll.

Með þeirri tengingu minnkar einnig umferð um Vikurveg, ónæði íbúa minnkar og umferðaröryggi á Víkurvegi eykst.

Þá liggur einnig fyrir að Íbúasamtök Grafarvogs, leggjast alfarið gegn öllum uppfyllingum við Gufunes, þar sem nægt byggingarland verður fyrir hendi í Geldinganesi, Gunnunesi og Álfsnesi, við það að hraða lagningu Sundabrautar alla leið upp á Kjalarnes.

ÍG vinnur nú að því að fjörur Grafarvogs verði friðlýstar.

Fulltrúar ÍG í samráðshópi um lagningu Sundabrautar:

 

Elísabet Gísladóttir (sign) Magnús Jónasson(sign)






Fleiri fréttir

Sjá meira


×