Innlent

Leikskólagjöld lækka um 30 prósent

Leikskólinn Dalur í Kópavogi.
Leikskólinn Dalur í Kópavogi.

Bæjarráð Kópavogs samþykkti á fundi sínum í dag að lækka leikskólagjöld um 30 prósent. Í tilkynningu frá Kópavogsbæ um ákvörðunina segir að þessi ákvörðun sé tekin með hliðsjón af góðum rekstri bæjarsjóðs. Þar segir enn fremur að eftir þetta verði Kópavogur það stóru sveitarfélaganna þar sem verður ódýrast að búa fyrir barnafjölskyldur.

Fram kemur í tilkynningunni að nýr leikskóli fyrir 120 börn verði opnaður í Kórahverfi 1. júní og að til standi að ljúka stækkun leikskólans Marbakka á árinu..

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×