Munur á ævilengd karla og kvenna hér á landi minnkar enn 30. mars 2006 07:56 MYND/Einar Örn
Munur á ævilengd karla og kvenna hér á landi minnkar enn. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni. Þá er Ísland með lægstu tíðni yfir ungbarnadauða í heiminum. Eins og annars staðar í heiminum er meðalævilengd karla á Íslandi styttri en kvenna. Íslenskir karlar geta nú vænst þess að verða 79 ára á meðan konur verða að meðaltali rétt tæplega áttatíu og fjögurra ára, þegar miðað er við meðaltal síðustu ára. Á undanförnum þremur áratugum hefur dregist talsvert saman með kynjunum í meðalævilengd. Í upphafi áttunda áratugarins var munurinn sex ár hér á landi en er nú tæp fjögur. Svipaða þróun má greina í öðrum Evrópulöndum en munur á ævilengd er þó víðast hvar meiri en hér. Í samanburði við hinar Norðurlandaþjóðirnar er munurinn minnstur á meðal Íslendinga. Bæði ungbarna- og burðarmálsdauði hefur verið með eindæmum lítill hér á landi á síðustu árum, og hefur nánast farið minnkandi allt frá sjötta áratuginum, eins og sést á þessari mynd. Burðarmálsdauði er reiknaður sem fjöldi látinna á fyrstu viku að viðbættum andvana fæddum börnum, en hann er nú þrjú komma sex börn af hverjum þúsund fæddum, sem er lægsta tíðni burðarmálsdauða í heiminum. Ungbarnadauði, sem skilgreindur er sem fjöldi látinna á fyrsta ári af hverjum þúsund fæddum, er sömuleiðis fátíðastur á Íslandi miðað við önnur lönd. Meðaltal undanfarinna fimm ára er tveir komma fimm af hverjum þúsund en hvergi annars staðar er ungbarnadauði nú undir þremur af þúsund. Annars staðar á Norðurlöndunum er hann lægstur í Svíþjóð og Finnlandi, þar sem rúmlega þrjú börn af hverjum þúsund deyja á fyrsta aldursári, en hæstur í Danmörku, eða fjórir komma fjórir einstaklingar af hverjum þúsund. Utan Norðurlandanna er ungbarnadauði nú minnstur í Japan þar sem þrjú börn af hverjum þúsund deyja áður en þau ná eins árs aldri.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira