Óánægja með frumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra 29. mars 2006 22:20 MYND/Vísir
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur ekki samþykkt frumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra um Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Óánægja er innan flokksins með hvernig staðið var að kynningu frumvarpsins en málið var rætt á þingflokksfundi nú undir kvöldið. Á fundi þingflokksins var frumvarp Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra rætt. Frumvarp iðnaðarráðherra felur í sér sameiningu Byggðastofnunar, Iðntæknistofnunar og Rannsóknarstofnunar í eina stofnun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem staðsett verður á Sauðárkróki. Iðnaðarráðherra kynnti frumvarpið á sérstökum blaðamannafundi áður en afstaða stjórnarflokkanna lá fyrir. Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði eftir þingflokksfundinn að málið hefði verið rætt á fundinum. Þingmönnum þætti vinnubrögð Valgerðar ekki eðlileg enda væri hefðin sú að málin væru fyrst afgreidd úr stjórnarflokkunum áður en þau væru kynnt. Frumvarpið hefur verið samþykkt innan þingflokks Framsóknarflokksins en samkvæmt heimildum NFS eru þó skiptar skoðanir um málið innan hans. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins afgreiddi ekki frumvarpið á þingflokksfundinum. Arnbjörg vill ekki fullyrða að málið verði samþykkt óbreytt en telur þó líklegt að það verði samþykkt í einhverri mynd. Hún segir þingmenn ósátta við það að ekki sé nógu mikil áhersla á byggðarmál í frumvarpi iðnaðarráðherra.
Fréttir Innlent Mest lesið Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Fleiri fréttir Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Sjá meira