Mikill áhugi fyrir listdansi hér á landi 29. mars 2006 22:09
Það vantar ekki listdansáhugann hjá nemendum Stúdentadansflokksins sem samhliða dansnáminu stunda allir krefjandi háskólanám. Stúdentadansflokkurinn var stofnaður formlega 1. febrúar síðastliðinn en það er Margrét Anna Einarsdóttir sem á veg og vanda að stofnun hans. Margrét, sem er á 2. ári í lögfræði á Háskólanum í Reykjavík, fór á fund rektora Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands sem tóku vel í hugmynd hennar og féllust á að styrkja dansflokkinn. Inntökupróf voru síðan haldin í janúar síðastliðnum og alls mættu fimmtíu manns. Tíu einstaklingar voru síðan valdir úr þeim hópi sem auk Margrétar æfa listdans þrisvar sinnum í viku í húsakynnum Lisdanskóla Íslands undir stjórn Helenu Jónsdóttir, sem er listrænn stjórnandi dansflokksins. Margrét segir mikinn áhuga vera fyrir listdansinum og það sýni sig t.d í því hversu margir mættu í inntökupróf. Danflokkurinn er að æfa fyrir sýningu um þessar mundir sem er fyrirhuguð í nóvember. Hún segir að markmið flokksins sé að bjóða upp á opnar dansæfingar fyrir háskólanema þegar fram líða stundir. Allir nemarnir í Stúdentadansflokknum hafa víðtæka reynslu í dansi en koma úr ólíkum áttum. Meðal þeirra fræða sem nemarnir leggja stund á innan veggja háskólanna eru lögfræði, læknisfræði, lyfjafræði og hagfræði. Óhætt er að segja að nemendur dansflokksins hafi óbilandi áhuga á dansnámi sínu jafnt sem háskólanámi því sjaldan er slegið slöku við, ekki einu sinni þegar prófin standa yfir.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Fleiri fréttir Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Sjá meira