Ótækt að fyrirtæki eigi aðgang að umheimi undir skoskum rottum 29. mars 2006 17:56
Ótækt er að íslensk fjármálafyrirtæki og rannsóknarstofnanir eigi samband sitt við umheiminn undir rottugangi á skosku hálendi. Athugasemdir í þessum dúr komu fram á fyrirspurnartíma á Alþingi í dag þar sem samgönguráðherra var inntur eftir því hvernig hann hygðist bæta netsamband við útlönd í ljósi eilífra vandkvæða með Farice-sæstrenginn. Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði samgönguráðherra á Alþingi í dag hvernig hann hyggðist efla eða endurnýja nettengingu Íslendinga við umheiminn í ljósi þess að samband um Farice sæstrenginn hafi rofnað 14 sinnum á síðasta ári og ennfremur í ljósi þess hversu strengurinn er dýr í rekstri. Hvort tveggja væri fyrirtækjum á sviði fjármála og rannsóknastofnana til mikilla trafala í rekstri sínum og skaðaði samkeppnishæfni þeirra við erlenda keppinauta. Tryggja verði stöðugleika. Samgönguráðherra tók undir það með þingmönnununum að vandkvæði væru með Farice strenginn. Ekki lofaði hann þó nýjum vara sæstrengi til að tryggja órofið samband við umheiminn enda það á könnu símafyrirtækja og þau ekki reiðubúin til þess að svo komnu. Hann ætlar að stofna nefnd til að fara yfir málið. Starfshópinn munu skipa stærstu meðeigindur ríkisins í Farice auk tveggja fulltrúa frá Samtökum atvinnulífisins og fulltrúum Sambands banka og verðbréfafyrirtækja. Ráðherrann leggur áherslu á að vinnu nefndarinnar verðið hraðað sem kostur er.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira