20 prósent nefnda bara skipaðar körlum 23. mars 2006 12:15
Ráðherrar hafa skipað nær 1.600 manns í nefndir síðan í nóvember 2004, að meðaltali um hundrað í hverjum mánuði. Fimmta hver nefnd er aðeins skipuð körlum.Síðustu sautján mánuðina hafa ráðherrar ríkisstjórnarinnar skipað 1.590 manns í samtals 250 nefndir á vegum ráðuneyta sinna. Þetta kemur fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Katrínar Júlíusdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar.Hátt í helmingur nefndanna heyrir undir eitt ráðuneyti, menntamálaráðherra hefur skipað tæplega 800 manns í rúmlega hundrað nefndir. Stór hluti nefndanna eru þó skólanefndir og ráð, nemaleyfisnefndir og stjórnir sjóða og stofnana.Athygli vekur að fimmta hver nefnd sem ráðherrar hafa skipað síðustu sautján mánuði er aðeins skipað körlum. Það eru 47 nefndir af 250 en sex nefndir eru aðeins skipaðar konum.Katrín segir þetta valda sér miklum vonbrigðum, ekki síst í ljósi þess að Alþingi hafi samþykkt jafnréttisáætlun fyrir ráðuneytin þar sem kveðið er á um að fjöldi karla og kvenna í nefndum skuli vera sem jafnastur. Hún segir að ábyrgðin hljóti að liggja hjá ráðherrum að fara eftir jafnréttisáætlun.Sex af hverjum tíu nefndarmönnum eru karlar og 40 prósent konur. Mikill munur er á þessu eftir ráðuneytum. Karlar eru í yfirgnæfandi meirihluta í þeim fjórum nefndum sem landbúnaðarráðherra hefur skipað, 88 prósent. Félagsmálaráðuneytið er hins vegar eina ráðuneytið þar sem konur eru í meirihluta þeirra sem hafa verið skipaðir í nefndir, 55 prósent nefndarmanna þar eru kvenkyns.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira