Umfjöllun um matvælaverð ósanngjörn 22. mars 2006 22:00
Ekki er sanngjarnt að segja að matvöruverslanir hriði gengishagnað af neytendum eins og Blaðið hélt fram í umfjöllun sinni um matvælaverð nú fyrir skömmu. Þetta segja Félag íslenskra stórkaupmanna og Samtök verslunar og þjónustu í yfirlýsingu sem þau hafa sent frá sér.Félag íslenskra stórkaupmanna og Samtök verslunar og þjónustu segja að ljóst sé að mikil samkeppni ríki milli matvöruverslana sem þrýstir á að gengisbreytingar, hverjar sem þær eru, komi fram í matvælaverði. Hins vegar sé það ekki eingöngu gengi sem hafi áhrif á matvælaverð heldur ýmislegt annað eins og verðbreytingar erlendis, breytingar á kostnaði við að koma vörunum á markað, birgðahaldskostnaður og opinber gjöld, laun og annar rekstrarkostnaður. Þegar tekið er tillit til þessa sé málflutningur Blaðsins í besta falli bjagaður og í versta falli ósannur að mati Samtaka verslunar og þjónustu og Félags stórkaupmanna.Á vef ASÍ var birt umfjöllun um matvælaverð þann 16. þessa mánaðar þar sem fram kemur matar- og drykkjarverð hafi hækkað stöðugt síðan í júní í fyrra og er nú að mestu orðið svipað hátt og það var í byrjun árs 2005 áður en verðstríðið á matvörumarkaðinum brast á. Í grein ASÍ rekja þeir hækkanirnar nú til þess að heildsalar hækkuðu heildsöluverð um áramótin þegar nýtt umbúðagjald var lagt á og til þess að kaupmenn séu að leiðrétta sinn hlut eftir að hafa farið halloka í verðstríði sem var þeim dyrkeypt.Samtök verlsunar og þjónustu og Félag stórkaupmanna benda á í yfirlýsingu sinni að matvara sé aðeins um 14% af heildarútgjöldum heimilanna og það hlutfall minnki stöðugt. Mikill áhugi sé hins vegar á þessarri grein verslunar og því sé brýnt að gefa reglulega út verðvísitölu fyrir matvöru svo hægt verði í framtíðinni að ræða áhrif gengis á verð á málefnanlegum nótum.
Fréttir Innlent Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira