Ljóst í febrúar að vellinum yrði lokað 20. mars 2006 18:57
Bandaríkjastjórn ætlar ekki að verja neinu fé til herstöðvarinnar í Keflavík frá 1. október á þessu ári. Samkvæmt heimildum NFS var þetta vitað strax í byrjun febrúar - og var ástæðan fyrir fundi samninganefnda Íslands og Bandaríkjanna í þeim mánuði. Bush Bandaríkjaforseti lagði fjárlagafrumvarp sitt vegna hersins fyrir 2007 fyrir bandaríska þingið þann 6. febrúar. En fjárlagaár hersins er frá 1. október - og í tillögum forsetans er ekki einn dollari fyrir varnarstöðina í Keflavík. Það þýðir einfaldlega að ef setja á eitthvert fé til starfseminnar í Keflavík frá 1. október, þá þarf annað hvort að taka það fé úr öðrum verkefnum eða fá fjáraukalög samþykkt á Bandaríkjaþingi. Talsmaður Bandaríkjahers segir í samtali við NFS að afar ólíklegt sé að stjórnin leggi nú til breytingar á fjárlagafrumvarpinu. Í þætti Jóns Ársæls, Sjálfstæðu fólki, á Stöð tvö kom fram í máli Geirs Haarde að símtalið fræga frá aðstoðarutanríkisráðherra á miðvikudag í síðustu viku hefði ekki komið sér á óvart. Össur Skarphéðinsson henti þetta á lofti og gagnrýndi á Alþingi í dag það sem hann kallaði pukur. Halldór Ásgrímsson hafnaði því. En NFS hefur heimildir fyrir því að fundur Geirs Haarde utanríkisráðherra með Condoleezu Rice annan febrúar - og fundir samninganefnda landanna í kjölfarið - hafi verið haldnir vegna þeirrar staðreyndar, sem þá lá fyrir, að Bandaríkjaforseti myndi ekki leggja til að fé yrði lagt í herstöðina í Keflavík eftir 1. október. Bandaríkjamenn vildu gera úrslitatilraun til að fá fram hvað Íslendingar væru reiðubúnir að leggja í púkkið til að halda stöðinni í gangi. Tilboðið var ekki nógu gott og því fór sem fór. En nokkrum dögum síðar, þegar fjárlagafrumvarpið kom fram, hefði íslenskum stjórnvöldum átt að vera ljóst þau þau höfðu þá þegar tapað baráttunni og vellinum yrði lokað fyrir 1. október.
Fréttir Innlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira