Apple trúir ekki fjöldatölum ipodspilara á Íslandi 12. mars 2006 20:00
Ekki fæst lengur gert við ipodspilara sem keyptir eru í útlöndum nema kassakvittun sé framvísað vegna þess að í höfuðstöðvum Apple eru menn vantrúaðir á að svo margir ipodar geti verið á Íslandi miðað við íslenskar sölutölur. Nýverið fóru höfuðstöðvar Apple að krefjast þess að fá kvittanir fyrir öllum ipodviðgerðum, en áður gátu Íslendingar gengið að viðgerðaþjónustu vísri án allra pappíra. Ástæða breyttra reglna er sú að í útlöndum trúa menn ekki að svo mörg ipodtæki geti verið á Íslandi, miðað við sölutölur hjá Applebúðinni í Reykjavík. Steingrímur Árnason, þróunarstjóri hjá Apple á Íslandi, áætlar að um fimmtíu þúsund ipodspilarar séu á Íslandi, en þar af er aðeins um fimmtungur keyptur hérlendis. Viðræður hafa staðið yfir við höfuðstöðvarnar í Evrópu til að útskýra aðstæður á Íslandi en þangað til neitar Apple að greiða fyrir ipod-viðgerðir nema staðfest sé hvar og hvenær spilarinn var keyptur. Í ofanálag hefur Apple á Íslandi þurft að tvígreiða innflutningsgjöld í þeim tilvikum þar sem nýr ipod kemur í stað ónýts tækis sem sent hefur verið út. Þetta þýðir að ef komið er með ipod í viðgerð hér á landi sem keyptur var í Bandaríkjunum og í ljós kemur að hann er ónýtur, þá þarf Apple á Íslandi að borga 12.000 krónur í aðflutningsgjöld fyrir nýjan ipod sem kemur í staðinn fyrir þann ónýta, jafnvel þó að sá gamli sé sendur út aftur og skýrt sé að einn komi í annars stað. Þetta stendur hins vegar til bóta og mun þessi tvítekning aðflutningsgjalda falli niður innan skamms.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira