Erlent

Öll tiltæk ráð

Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels.
Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels. MYND/AP

Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, hefur fyrirskipað ísraelskum öryggissveitum að beita öllum tiltækum ráðum í baráttu sinni við herskáa Palestínumenn.

Ofbeldisverk þeirra geng Ísraelum hafa verið tíð síðustu vikur og hefur það aukið þrýsting á Olmert í aðdraganda þingkosninganna síðar í mánuðinum.

Skoðanakönnun sem birt var í morgun sýnir að Kadima-flokkur Sharons forsætisráðherra, sem Olmert fer nú fyrir, hefur tapað nokkru fylgi frá síðustu könnunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×