Neitar að hafa vitað um vangoldin opinber gjöld 27. febrúar 2006 18:48
Eyjólfur Sveinsson segist ekki hafa vitað um vangoldin opinber gjöld ýmissa fyrirtækja sem hann var í forsvari fyrir. Aðalmeðferð í máli gegn honum og níu öðrum hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Rétt er að taka fram að ekki er um hið svokallaða Frjálsrar fjölmiðlunar mál, þótt það fyrirtæki komi að málinu. Ljóst er að enn á eftir að taka skýrslur af fjölda vitna og ákærðra. Ákæran er í 9 liðum og lúta 8 þeirra að því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti nér staðgreiðslu opinberra gjalda, en einn liðurinn kveður á um umboðssvik og beinist hann að Eyjólfi og fjármálastjóri vísis.is, þar sem segir að fjármálastjórinn hafi að fyrirskipan Eyjólfs sem var stjórnarformaður millifært 24 milljónir króna af reikningi í SPRON, í formi yfirdráttar án þess að heimild væri fyrir hendi. Peningunum hafi verið ráðstafað að stórum hluta inn á reikninga Fréttablaðsins. Fjármálastjórinn bar fyrir dómi í morgun að hann hafi fært út af reikningnum fé sem átti að vera komið inn vegna sölu á vísi.is, en síðan hafi komið í ljós að sú greiðsla hafi ekki borist að fullu. Eyjólfur neitaði að hafa gefið fyrirmæli um að þessar færslur ættu sér stað. Hinir 8 ákæruliðirnir tengdust Dagsprenti, Markhúsinu, Nota Bene, Info, Póstflutningum og ÍP-prentþjónustunni, en Eyjólfur og oft Sveinn faðir hans komu að eign eða stjórn þessara fyrirtækja. Þeir feðgar könnuðst hvorugur við fyrir dómi að hafa vitað að virðisaukaskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda væri í vanskilum fyrr en á seinni stigum. Ljóst hafi verið að þessi fyrirtæki hafi flest eða öll átt í erfiðleikum og í sumum tilfellum hafi ekki verið hægt að greiða laun og því ekki haldið eftir staðgreiðslu opinberra gjalda. Þá hafi, eins og í tilfelli Póstflutninga, ekki verið skýrt hvort fyrirtækið væri í virðisaukaskattsskyldum rekstri.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Fleiri fréttir Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Sjá meira