Erlent

Ódæðismennirnir særðust sjálfir

Vopnaðir verðir fylgdu sjía klerknum Moqtada al-Sadr um götur Basra í Írak í morgun.
Vopnaðir verðir fylgdu sjía klerknum Moqtada al-Sadr um götur Basra í Írak í morgun. MYND/AP

Að minnsta kosti fimm létu lífið og þrír særðust þegar bílsprengja sprakk á strætóstóð í bænum Hilla suður af Bagdad í Írak í morgun. Þrír særðust þegar önnur sprengja sprakk skömmu síðar í mosku sjía-múslima í Basra. Óttast er að borgarastyrjöld kunni að vera yfirvofani í Írak.

Þrír menn særðust í árásinni á Imam Ali mosku sjía-múslima í Basra. Sprengjan sprakk nánast í höndum mannanna sem voru að koma henni fyrir og því voru það aðeins þeir sem særðust. Sjía klerkurinn Moqtada al-Sadr hélt fjöldafund í Basra stuttu áður en sprengjan sprakk og hvatti til þess að súnníar og sjíar kæmu saman til bæna næsta föstudag.

Nú er ljóst að fjórir létu lífið og sex særðust þegar eldflug skall á heimilum nálægt al-Dabash mosku súnnía í Bagdad í gær. Eftirlifendur gengu um rústir heimila sinna og eru uggandi um framtíðina. Svipuð árás varð þremur að bana í Sadr-borg í gær. Sextíu hafa látið lífið í átökum í Írak síðasta sólahringinn en allt í allt hafa hátt í tvö hundruð látið lífið í átökum og ýmis konar ofbeldi síðan á miðvikudag, þegar guðshús sjía-múslima í Samarra var eyðilagt í sprengingu. Óttast er að borgarastyrjöld milli sunni- og sjía-múslima kunni að vera yfirvofandi í Írak.

Enn er útgöngubann í Bagdad, þriðja daginn í röð. Götur borgarinnar voru hljóðar í morgun og þungvopnaðir íraskri hermenn mönnuðu vegatálma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×