Erlent

Bílsprengja í Hilla

Íraskur lögreglumaður við eftirlit í Bagdad. Þar er útgöngubann í gildi þriðja daginn í röð.
Íraskur lögreglumaður við eftirlit í Bagdad. Þar er útgöngubann í gildi þriðja daginn í röð. MYND/AP

Bílsprengja sprakk á strætóstöð í bænum Hilla suður af Bagdad í Írak í morgun. Að minnsta kosti fimm manns létu lífið og þrír særðust. Enn er útgöngubann í Bagdad, þriðja daginn í röð.

Götur borgarinnar voru hljóðar í morgun og þungvopnaðir íraskri hermenn mönnuðu vegatálma. Um 200 manns hafa látið lífið í átökum og ýmis konar ofbeldi síðan á miðvikudag, þegar guðshús sjía-múslima í Samarra var eyðilagt í sprengingu.

Óttast er að borgarastyrjöld milli sunni- og sjía-múslima kunni að vera yfirvofandi í Írak.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×