Mannskæð átök í Írak 25. febrúar 2006 12:15 Vopnaður lögreglumaður við eftirlit í Bagdad. MYND/AP
Að minnsta kosti sjö létu lífið og tugir særðust þegar bílsprengja sprakk á fjölförnum markaði í borginni Kerbala í Suður-Írak í morgun. Svo virðist sem sprengjan hafi verið fjarstýrð. Árásin var gerð aðeins nokkrum klukkustundum eftir að byssumenn réðust inn í hús í borginni Baquba í Norður-Bagdad og myrtu tólfmanna fjölskyldu sjía múslima. Útgöngubann er enn í gildi í höfuðborginni Bagdad og voru fáir á ferli þar í morgun. Óttast er að borgarastyrjöld kunni að brjótast út í landinu en átök milli sjía og súnní-múslima hafa færst í aukana síðan ein helgasta moska sjía-múslima var sprengd í loft upp á miðvikudag. Ibrahim al-Jaafari, forsætisráðherra Íraks hét því í gær að þær moskur sjía og súnnía, sem hefðu eyðilagst í átökunum, yrðu reistar á ný. Vel þekkt fréttakona frá arabísku sjónvarpsstöðinni Al-Arabía var borin til grafar í Írak morgun en hún lét lífið í átökum á miðvikudag þegar hún var að vinna að frétt um árásina á moskuna í Samarra. Um það bil 150 manns fylgdu henni til grafar. Skotið var á líkfylgdina þar sem hún fór um vesturhluta Bagdad og svöruðu öryggissveitir í sömu mynt en um það bil 60 hermenn höfðu fengið það verkefni að gæta syrgjenda. Einn hermaður lét lífið í skotbardaganum og einn almennur borgari særðist. Þegar líkfylgdin nálgaðist svo þann stað þar sem konan skyldi lögð til hinstu hvílu ók ein bifreið öryggissveitarmanna yfir sprengju sem varð tveimur hermönnum að bana og særði fjóra almenna borgara.
Erlent Fréttir Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Innlent Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? Innlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent „Það er orrustan um Ísland“ Innlent Fleiri fréttir Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Sjá meira