Erlent

Viðræður við Mladic sagðar standa yfir

Radovan Karadzic og Ratko Mladic eru sagðir bera ábyrgð á verstu grimmdarverkum sem unnin hafa verið í Evrópu eftir lok síðari heimsstyrjaldar.
Radovan Karadzic og Ratko Mladic eru sagðir bera ábyrgð á verstu grimmdarverkum sem unnin hafa verið í Evrópu eftir lok síðari heimsstyrjaldar. MYND/AP
Stjórnvöld í Belgrað eru sögð standa í samningaviðræðum við Ratko Mladic, fyrrverandi hershöfðingja Bosníu-Serba, um að gefa sig fram. Hann hefur verið eftirlýstur af stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í rúm tíu ár. Þetta var haft eftir Bernard Bot, utanríkisráðherra Hollands, rétt áðan. Fullyrt var fyrr í vikunni að Mladic hefði verið handtekinn í Belgrað en serbneska ríkisstjórnin neitaði því. Bot segir serbneska ráðamenn hafa sagt sér þetta þegar hann var á ferðalagi í Serbíu í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×