Íslenski fáninn tekinn niður í Amman 6. febrúar 2006 19:23
Reiði múslíma í garð Dana vegna myndanna af Múhameð spámanni magnast enn. Fjórir liggja í valnum eftir mótmæli í Afganistan og Sómalíu í dag. Og í Amman, höfuðborg Jórdaníu, hefur ræðismaður Íslands tekið niður íslenska þjóðfánann af ótta við að ráðist verði á hús hans. Það er nánast sama hvar borið er niður í heiminum, alls staðar hafa múslimar sameinast um að lýsa megnri vanþóknum á uppátæki Jótlandspóstsins, og annarra blaða, sem þeir telja freklega árás á trú þeirra og enn eitt dæmið um fyrirlitningu Vesturlanda í sinn garð. Meira að segja á Nýja-Sjálandi tóku reiðir múslimar höndum saman og andæfðu birtingu þarlendra fjölmiðla á myndunum af Múhameð. Mótmælin í Auckland fóru friðsamlega fram en hið sama var ekki uppi á teningnum í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Þar sló í brýnu á milli lögreglu og andófsmanna fyrir framan danska sendiráðið og enduðu átökin með að þrír lágu í valnum. Fyrr um daginn hafði sómalskur maður dáið í svipuðum óeirðum. Þótt íslenskir fjölmiðlar hafi farið sér hægt í myndbirtingum af spámanninum eru Íslendingar í Miðausturlöndum uggandi enda tilhneiging til að líta svo á að norræn ríki séu eins og ein fjölskylda. Stefanía Reinhardsdóttir Khalifeh, ræðismaður Íslands í Amman í Jórdaníu, sagði í samtali við NFS að hún hafi tekið niður íslenska fánann sem blaktir fyrir utan ræðisskrifstofuna. Eins hafi hún fjarlægt flaggið af bifreið sinni, þótt Stefanía segist hafi raunar ekki farið út úr húsi í dag. Dönsk stjórnvöld vöruðu í dag þegna sína við að ferðast til þeirra fjórtán landa þar sem ólgan hefur verið einna mest, þar á meðal Jórdaníu. Fjölda flugferða frá Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn til Mið-Austurlanda var aflýst í dag og var ekki annað að heyra á ferðalöngum en að þeir væru því hálfpartinn fegnir að fara hvergi.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Sjá meira