Ekkert neyðarkall barst frá egypsku ferjunni 3. febrúar 2006 23:00
Ekkert neyðarkall barst frá egypsku ferjunni áður en hún hvarf af ratsjá og sökk í Rauðahafið í nótt. Talið er að um þrettán hundruð manns hafi verið um borð en aðeins hefur tekist að bjarga um eitt hundrað þeirra. Ekki er talið að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Ferjan, sem var þrjátíu og fimm ára gömul, sökk um sjötíu kílómetra fjarlægð frá egypsku höfninni Hurghada á milli miðnættis og tvö í nótt. Flestir farþeganna voru sofandi þegar ferjan steyptist ofan í kaldan sjóinn en aðeins hefur tekist að bjarga um eitt hundrað manns sem fundust í fimm björgunarbátum. Flestir farþeganna voru egypskir pílagrímar en einnig voru pílagrímar frá Súdan og Sýrlandi í ferjunni, á leiðinni frá hinni heilögu borg Mekka í Sádí Arabíu. Egypska strandgæslan missti samband við ferjuna fljótlega eftir að hún lagði af stað frá höfn í gærkvöld en ekkert neyðarkall barst áður að sögn þarlendra yfirvalda. Alls liðu tíu klukkustundir frá því samband rofnaði og björgunarmenn komust á staðinn en vegna slæmra veðurskilyrða gekk illa að staðsetja hvar ferjan fór nákvæmlega niður. Jack Straw, utanríkisráðherra Breta var á fundi með forsætisráðherra Súdan þegar fregnir af slysinu bárust. Sem fyrr segir voru veðurskilyrði mjög slæm þegar ferjan sökk og áttu björgunarskip og þyrlur erfitt með að athafna sig á slysstað. Fjöldi sjúkrabíla er nú við nálægustu hafnir þar sem slysið varð en litlar líkur eru þó taldar á að mikið fleiri finnist á lífi. Ferjuslys eru tíð í þessum hluta heimsins og yfirvöld margoft verið gagnrýnd fyrir lélegt eftirlit með öryggi.
Erlent Fréttir Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira