Íranar vilja forðast Öryggisráð SÞ 30. janúar 2006 12:07 Ari Larijani (t.v.), samningamaður Írana í kjarnorkumálum, fundar með Mohamed ElBaradei, yfirmanni Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. MYND/AP
Íranar hafa óskað eftir fundi með fulltrúum Breta, Frakka og Þjóðverja í dag vegna deilunnar um kjarnorkuvopnaáætlun stjórnvalda í Teheran. Stjórn Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar kemur saman síðar í vikunni og ræður ráðum sínum og gæti vísað málinu til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Íranar ætla að freista þess að koma í veg fyrir það. Stjórn kjarnorkumálastofnunarinnar kemur saman á fimmtudag til að ræða rök Bandaríkjanna og Evrópusambandsins fyrir því að vísa deilunni til Öryggisráðsins þar sem hægt verði að ræða mögulegar refsiaðgerðir gegn stjórnvöldum í Teherean. Grunur leikur á að Íranar ætli að auðga úran til kjarnorkuvopnaframleiðslu þó þeir haldi því fram að það sé aðeins gert í friðsamlegum tilgangi. Talsmaður bresku stjórnarinnar segir fulltrúa Breta, Frakka og Þjóðverja funda með helsta samningamanni Írana í kjarnorkumálum í Brussel og hlusta á málflutning hans. Evrópuveldin þrjú ætla að samræma stefnu sína við fulltrúa Bandaríkjanna, Kína og Rússlands og munu utanríkisráðherrar ríkjanna sex funda í Lundúnum síðar í dag. Þar munu Bandaríkjamenn og Evrópusambandsríki reyna að fá Kínverja og Rússa til að samþykkja hertari aðgerðir í deilunni. Íranar hafa lýst því yfir að þeir ætli að banna skyndieftirlit alþjóðlegar eftirlitsmanna verði deilunni vísað til ráðsins. Rússar hafa boðist til að taka að sér að auðga úran fyrir Írana og er það tilboð í skoðun. Ýmsar þjóðir hafa þó efasemdir um hversu heilir Íranar séu í þeim viðræðum, þeir séu aðeins að taka þátt í þeim til að kaupa tíma. Indverjar ætla að sitja hjá þegar kemur að atkvæðagreiðslu um málið á fundi stjórnar kjarnorkumálastofnunarinnar. Sendiherra Bandaríkjanna á Indlandi sagði í síðustu viku að ef Indverjar greiddu ekki atkvæði gegn stjórnvöldum í Teheran gæti samningur Bandaríkjamanna og Indverja um samvinnu í kjarnorkumálu verið í hættu. Háttsettur sendifulltrúi Indverja segir ekki hægt að greiða atkvæði í málinu þegar þessi ummæli hafi verið látin falla.
Erlent Fréttir Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira