Erlent

Sjálfsmorðsárás í herstöð NATO í Afganistan

Sjálfmorðsárás var gerð á herstöð Atlantshafsbandalagsins í vesturhluta Afganistan í morgun. Auk árásarmannsins fórust tveir Afganar í sprengingunni. Átta slösuðust, þar á meðal einn Ítali. Þetta er fjórða árásin sem gerð er á erlenda setuliðið í landinu á þremur dögum. Talibanar hafa þegar lýst yfir ábyrgð á tilræðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×