Erlent

Útilokar ekki að Hamas viðurkenni Ísraelsríki

MYND/AP

Khaled Mashaal, leiðtogi Hamas-samtakanna, útilokar ekki að samtök hans viðurkenni Ísraelsríki, að uppfylltum skilyrðum. Mashaal fundaði með Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, í Moskvu í gær og sagði við það tækifæri að ef Ísraelar drægju sig til baka frá þeim svæðum sem þeir hertóku í sex daga stríðinu árið 1967 og heimiluðu flóttamönnum að snúa heim myndu Hamas vera reiðubúnir til að vinna að friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Lavrov skoraði á Hamas að afvopnast og sagði að tækist þeim ekki að þróast úr hryðjuverkasamtökum yfir í stjórnmálahreyfingu myndu þau einangrast enn frekar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×