Erlent

Sverrir Magnús skírður í Osló

MYND/AP

Norski prinsinn Sverrir Magnús var skírður í kapellunni í konungshöllinni í Osló í dag, þriggja mánaða gamall. Það var amman hans, Sonja drottning, sem hélt á honum undir skírn en hann lét vel í sér heyra undir skírninni og gerði sitt besta til að yfirgnæfa Ole Christian Kvarme, biskup í Osló, sem skírði hann.



Fjöldi konunglegra gesta var við skírnina, þar á meðal Margrét Danadrottning og sonur hennar og tengdadóttir, Firðrik krónprins og María Elísabet krónprinsessa. Sverrir er annað barn Hákons krónprins og Mette-Marit krónprinsessu en Mette-Marit á dreng frá fyrra sambandi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×